Merki, umbúðahönnun og myndskreyting

Wild vörulínan frá Og natura byggir á gamalli fjölskylduhefð og er framleidd af nákvæmni úr handtíndum villtum íslenskum jurtum. Hönnun umbúðanna endurspeglar ferli vörunnar: hefðir, nákvæmni og óhamda náttúru. Handtíndar íslenskar jurtir dansa villtar yfir stílhreinar upplýsingar og storka náttúrulögmálum og viðmiðum grafískrar uppsetningar. Myndskreytingarnar eru klippimyndaverk unnin úr flóruteikningum gamalla grasafræðirita.