arrow icon

Kaffitár

Umbúðir og mörkun

Myndband: Thank You Studio

Umbúðir Kaffitárs fengu yfirhalningu árið 2018. Laufey hjá Konsept stýrði verkefninu í nánu samstarfi við starfsfólk Kaffitárs, sem lagði ástríðu sína og sérfræðiþekkingu í verkefnið. Má þar nefna Aðalheiði, stofnanda Kaffitárs, Sólrúnu Björk, sölu- og markaðsstjóra, Björn, framleiðslustjóra, og Ragnheiði, brennslumeistara.

Kaffitár framleiðir fjölbreytt úrval kaffitegunda og er framboðið mismunandi eftir verslunum og árstíðum. Því var einnig markmiðið að vekja meiri athygli á þessu glæsilega úrvali, gera frumskóg kaffinördsins aðgengilegri fyrir byrjendur og lengra komna og auðvelda viðskiptavinum að finna Kaffitárskaffi við sitt hæfi allt árið um kring.

Myndband: Thank You Studio

Allar kaffitegundir Kaffitárs voru metnar út frá bragðtónum, ávexti, brennslu, fyllingu, og þannig flokkaðar í fjóra litaflokka eftir bragðupplifun. Litakerfið auðveldar kaffiunnendum að velja kaffi við sitt hæfi. Þannig getur hver sá sem kann að meta ákveðna tegund af kaffi prófað nýjar tegundir í sama lit og verið nokkuð viss um að þær falli í kramið.

Verkefnið leiddi meðal annars af sér nýjar umbúðir með litakerfi, unnar í samstarfi við Farva, Kaffitárs-bragðkortið og Kaffitárspróf á netinu sem auðveldar viðskiptavinum að finna uppáhaldskaffið sitt.

Laufey Jónsdóttir hjá Konsept hefur sinnt listrænni stjórnun fyrir Kaffitár frá árinu 2016 og unnið fyrir þau fjölmörg hönnunarverkefni af ýmsum stærðargráðum.