
Vaka er oftast hugrökk og glaðvær stúlka. En þegar rökkrið sækir að líður henni ekki vel. Á nóttunni er eins og allt breytist og myrkrið tekur völdin. Eitt kvöld ber undarlegan gest að garði og dularfullir hlutir eiga sér stað.
Bókin hlaut tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur og viðurkenningu í flokknum „Myndlýsingaröð“ frá Félagi íslenskra teiknara. Höfundar bókarinnar eru Anna Margrét Björnsson og Laufey Jónsdóttir, gefin út af Sölku.